Tungufellsdalur

Safngerðið
Gönguleiðir í Tungufellsdal
Tungufellsdalur

Tungufellsdalur

Tungufellsdalur er skógi vaxinn dalur inn af bænum Tungufelli.  Þar rennur í gegn áin Dalsá og í hana rennur Svartá í fallegu gljúfri í miðjum dalnum.

Í skóginum í Tungufellsdal eru skemmtilegar gönguleiðir t.d. inn að Svartárgljúfri sem er vel falið í skóginum. Einnig er hægt að ganga uppá Tófuhól sem er vestan megin í dalnum og er þaðan mjög víðsýnt. Inn af Tungufellsdal er svæði sem nefnist Deild, þaðan er mjög skemmtileg gönguleið að Gullfossi austanverðum.

 

Hagaganga hesta

Safngerði er staðsett á miðjum Tungufellsdal, það var upphaflega girt fyrir fjársafn Hrunamanna og er það enn geymt yfir nótt á Dalnum áður en það er rekið á Hrunavelli til rétta.

Gerðið er leigt út yfir sumartímann einstaka nótt fyrir hagagöngu hesta.

Verð: kr 300 á hest

Vinsamlegast athugið að panta þarf tímalega fyrir hagagönguna í síma: 4866423 eða 6610414.

Gerðið er lokað fyrstu tvær vikurnar í september áður en safnið kemur niður af afrétt.

 

Hvar er Tungufell!

Tungufell í Hrunamannahreppi er um 20 km fyrir ofan Flúðir.  Þegar komið er í gegnum Flúðir er beygt inná veg nr 30 og ekið um 16 km.  Þá er beygt inná veg nr 349 Tungufellsveg.

Hafðu samband

Tölvupóstur